hestvisor.jpg

 

 

 

  Litla Jörp með lipran fót

labbar götu þvera

hún mun seinna á mannamót

mig í söðli bera.

 

224_24791.jpg

Léttum fótum lemur frón,

lýstur grjótið sundur,

upp á móti eins og ljón

æðir fljót sem tundur.

Páll Ólafsson.

 

 111111

m0035327.jpg

 111111

Rauður minn er sterkur stór,
stinnur mjög til ferðalags,
suður á land hann feitur fór,
fallegur á tagl og fax.

 

11111111 100.jpg111111111

Gott á hún Sjarna

að standa nú þarna

við stallinn og éta,

ekkert að vinna

meira né minna

en míga og freta.

Páll Ólafsson.

 

 

100_1869.jpg

 

Umbrum bumbrum hrævra hross

hér eru menn á eftir oss.

Umbrum bumbrum hrævra hre

hverjir ætli þetta sé.

Æri Tobbi.

pokkadisJormuni.jpg

Litli Skjóni leikur sér,
lipurt hefur fótatak,
pabbi góður gaf hann mér,
gaman er að skreppa' á bak

 

Lira-fra-Sydstu-Grund.gif

Farðu hægt við folann minn,
fáum hann reynist þægur.
Hann er eins og heimurinn,
hrekkjóttur og slægur.

 

149_4949.gif

Runki fór í réttirnar
ríðandi á honum Sokka.
Yfir holt og hæðirnar
hann lét klárinn brokka.

 

gulsvart_3.gif

Alla som har en bild på denna sida!

© Foto Sonja Elg / © Bild Rebecca / © Bild Sandra

 / Þokkadís & Jörmuni © Foto Lena / © Foto Ulrika /

Mynd © Ransy / © Mynd Heiða / © Mynd ? / © Mynd ?

 Fyrirsögu myndir er fraLilja

 

Jarpur

 

Sesar © Mynd Baru

 

Hjörtur dreymir, bylgjast blær,

Björtu heimur krýnist.

Stundin gleymist, geðið hlær,

Grundin streyma sýnist.

 

Móalóttur

 Lagsi.jpg

Lagsi frá Bár  © Mynd Valgerður

 

Ríður fríður rekkurinn,

Rjóður, móður, vel búinn,

Keyrir blakar klárinn sinn,

Kvikar vakur fákurinn.

 

Fífilbleikur

 158_5809.gif

 Fifel © Bild Rebecca

Skeifna þoldu skaflarnir,

Skyrptist mold úr hófum,

Tildraði fold – en taumarnir,

Tálguðu hold úr lófum.

Brúnn

 kjafin.jpg

Kjarni frá Kálfsstöðum  © Foto Ella

 

Glæsilyfting,gangi settum

Gjarna skipt að vilja manns;

Fleygadrift í fetum léttum,

Fylgir gifta sporum hans. 

 

Jarpskjóttur

 

Oft við hófa hraðan dans

Hlaut ég sár og fleiður.

Hófumkostur hestamanns

Er harður rass og breiður.

Jarðpvindóttur,blésóttur

 

Hvekkt´ann aldrei, kembd´ann milt,

Kærleiks galdri beittu.

Sé hann baldinn, blítt og stillt

Boðs og valda neyttu.

 

Bleikálóttur

 

Þegar glettin bölsins brek

Byrgja þétt að vonum.

Fótaléttan fák ég tek,

Fæ mér sprett á honum.

 

Leirljós

 

Freðinn svörður, fönn um skörðin,

Falin jörð í klaka og snjó.

Klömbruð hjörðin krafast börðin,

Kroppar örðu úr  mosató.

 

Gráskjóttur

 

Beitti skaflaskeifum sá,

Skrifað gat um vetur

Í tunglsljósi ísinn á

Ómáandi letur.

 

Svartur

 

Það geisla úr augunum göfgi og vit,

Grannur og æðaber vangi.

Sívalur skrokkurinn, svartur á lit,

Svífandi á ferðmiklum gangi.

 

Rauður

 m0028552.jpg 

© Mynd Liga

 

Reistur jór – á fæti frár,

Fimur, snjall og  skarpur.

Vöðvastæltur, vaskur, knár,

Valinn ferðagarpur.

 

Rauðstjörnóttur glófextur

 

Fallegur verður folinn minn,

Fold og himinn smíð”ann:

Jörðin gefur gróður sinn,

Geislar litum prýð”ann.

 

Bleikur

 Mjolnirerbleikur.jpg

Mjölnir © Mynd Sigridur

 

Forlög þjóðar, fáks og manns,

Fótspor saman undu.

Íslending og hestinn hans

Heillastengjum bundu

 

Steingrár

 

Sá ég hestaflokk um fjöll

Feta gamlar sjóðir.

Heiðar , móar, holyin öll,

Hér eru vinir góðir

.

Bleikskjóttur,kolóttur

 

Meðan sagra sæmir lýði

Og sólskinsdagar hæfa þjóð,

Er í haga héraðsprýði

Hross og fagurlitað stóð.

Blaikálóttskjóttur

 

Þó að bolabrögðin mest

Brúki svoli óður,

Úr göldrum fola góðan hest,

Geir þolinmóður.

Rauðblesóttur

 

Fjörið blikar augum í,

Aldrei hik í spori.

Lundin mikil, hrein og hlý,

Hlaðin kviku þori.